![]() |
Réttur | ![]() |
|
Sýningaréttur Myndir / þættir sem sýndir eru í kerfum fjölbýlishúsa, hótelum, skólum eða öðrum þeim stöðum þar sem atvinnustarfsemi fer fram, teljast til opinberar sýninga. Þær eru óheimilar samkvæmt 3. gr., sbr. 1. mgr. 8. gr., 1. tl. 2. mgr. 54. gr. og 61. gr. gr. a., höfundalaga nr. 73/1972, sbr. 5. gr. laga nr. 78/1984 og 2. gr. 8. gr. og 19. gr. laga nr. 57/1992 og lög nr. 74/1947 og auglýsingu nr. 110/1947 um inngöngu Íslands í Bernarsambandið, sbr. lög nr. 80/1972 um heimild ríkisstjórninni til handa til að staðfesta Bernarsáttmálann til verndar bókmenntum og listaverkum í þeirri gerð hans sem samþykkt var á ráðstefnu Bernarsambandsríkja í París 24. júlí 1971 og 1. og 2. mgr. 5. gr. fylgiskjals með þeim lögum og auglýsingu nr. 763/1999 um afhendingu aðildarskjals Íslands vegna 1. til 21. gr. Bernarsáttmálans til verndar bókmenntum og listum og um aðildarríki að sáttmálanum. Vilji skóli eða félagasamtök halda opinbera sýningu á erlendum kvikmyndum og / eða sjónvarpsþáttum þarf að sækja um leyfi hjá SMÁÍS. Einungis þar að senda fyrirspurn á smais@smais.is. Taka þarf eftirfarandi fram:
Viðkomandi fær þá staðfestingu til baka frá SMÁÍS um leyfi sýningarinnar eða neitun ef svo ber við. Vinsamlega sendið fyrirspurn með a.m.k þriggja daga fyrirvara áður en sýning skal fara fram. Hafa ber í huga eftirfarandi atriði þegar sótt er um leyfi til opinberrar sýningar:
Verði sýningar haldnar án leyfis, eða aðrar myndir sýndar en leyfi hefur verið gefið fyrir, áskiljum við okkur allan rétt til þess að kæra þá aðila sem standa að slíkri sýningu til lögreglu, enda felur slík sýning í sér refsiverða háttsemi. Verð fyrir sýningarrétt er kr. 5.000 án VSK. og er það gjald óháð fjölda. Þó getur SMÁÍS samið sérstaklega um annað gjald ef að fjöldi áhorfenda fer yfir 40 manns eða sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Leiguréttur Samkvæmt 24. gr. höfundarlaga nr. 73/1972 er eingöngu leyfilegt að leigja út þær myndir sem keyptur hefur verið leiguréttur af. Hér á landi eiga þessar myndir að vera merktar rauðum miða frá útgefendum sem á stendur,,eingöngu til útleigu”. Hafir þú keypt leigumynd, sem ekki er merkt, þá vinsamlegast hafðu samband við útgefanda efnisins. Það er því óheimilt að: 1. Leigja út myndir, sem keyptar hafa verið sem sölumyndir, hvort sem kaupin fóru fram hér á landi eða annars staðar. 2. Afrita efni nema með leyfi rétthafa. Í því felst að ekki er heimilt að fjölfalda, eða afrita efni, þótt leigurétturinn hafi verið keyptur með upphaflegu eintaki. 3. Óheimilt er að leigja út myndir sem fengnar eru af öðrum svæðum en Evrópu t.d. Bandaríkjunum (NTSC eða Region Code 1). 4. Óheimilt er að leigja út efni sem fengið er af netinu. Það er hagur allra þeirra sem starfa á íslenskum leigumarkaði að virða í hvívetna þau lög og reglur sem gilda um höfundarétt. Með því stuðlum við að heilbrigðu viðskiptaumhverfi og tryggjum gæði þess efnis sem berst í hendur viðskiptavina. Höfundaréttur er eignaréttur sem er forsenda þess að höfundaréttarverndað efni verði til. Frekari upplýsingar er hægt að fá með því að hafa samband við smais@smais.is, eða hringja í 588-3800. |
![]() |
Bæklingurinn ungt fólk og internetið | Könnun | ![]() |
|
Að skiptast á tölvuskrám. Leiðbeiningar fyrir foreldra. |
|




