SAMÞYKKTIR
SAMTAKA MYNDRÉTTHAFA Á ÍSLANDI
frá aðalfundi Maí 2007.
1.0. Nafn samtakanna og heimilisfang.
Nafn samtakanna er SAMTÖK MYNDRÉTTHAFA Á ÍSLANDI, skammstafað SMÁÍS. Samtökin eru með aðsetur að Laugavegi 182 í Reykjavík.
1.1. Myndefni er skilgreint sem:
Kvikmyndir, sjónvarpsefni og annað það efni sem sýnt er í kvikmyndahúsum, dreift er á myndböndum og/eða DVD diskum – eða með annarri tækni sem kann að verða til í framtíðinni, sýnt er í sjónvarpi, hvort sem er um áskrift er að ræða eður ei. Einnig flokkast tölvuleikir til einkanota undir myndefni.
2.0. Tilgangur.
Tilgangur samtakanna er:
Að vera sameiginlegur vettvangur fyrir útgefendur, dreifingaraðila og framleiðendur myndefnis sem sýnt er á Íslandi.
Að gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart löggjafanum, hinu opinbera, neytendum, erlendum samtökum sama eðlis, myndbandaleigum, fjölmiðlum og öðrum, sem beint eða óbeint eru viðskipta- eða lagalega tengdir dreifingu myndefnis hér á landi.
Að vinna að því markmiði að hafa með því eftirlit, að myndefni sem á boðstólum er hér á landi í sjónvarpi, til útleigu eða sölu sé dreift samkvæmt gildandi lögum.
Að stuðla að samræmingu útgáfumála á myndefni til hagsmuna fyrir neytendur.
Að standa saman að réttaraðgerðum gegn hvers konar skerðingum á lagalegum rétti og öðrum hagsmunum félagsmanna hér á landi.
Að vera ráðgefandi aðili fyrir ýmis hagsmuna- og tæknileg málefni sem viðkoma útgáfu myndefnis.
3.0. Aðildarskilyrði.
Hvert það firma, félag eða lögpersóna, sem hefur rétt til framleiðslu og/eða dreifingar myndefnis hérlendis getur átt aðild að samtökunum,sem og auk fulltrúa erlendrar rétthafa af því efni sem dreift er hér á landi. Stjórn samtakanna tekur til umfjöllunar og ákvörðunar umsóknir um inngöngu í samtökin. Úrsögn úr samtökunum þarf að fara fram skriflega og berast skrifstofu samtakanna með minnst sex mánaða fyrirvara.
Félagar skuldbinda sig til að virða í hvívetna samþykktir samtakanna og samninga sem samtökin gera við önnur félagasamtök og stofnanir.
4.0. Aðalfundur.
4.1. Atkvæðisréttur.
Aðalfundur er æðsta vald í stjórn samtakanna.
Einfaldur meirihluti atkvæða skal liggja að baki hverrar samþykktar á aðalfundi að undanskildum ákvörðunum um breytingar á samþykktum og félagsslit skv. grein 13.0.
Atkvæðagreiðsla fer fram með handauppréttingu, nema einhver félaga krefjist skriflegrar atkvæðagreiðslu.
Hver félagi hlýtur atkvæðismagn sem að tiltölu er jafnt hlutfalli félagsgjalda í SMÁÍS.
Félagi sem hefur ekki greitt gjaldfallið félagsgjald, hefur ekki atkvæðisrétt. Hver einstakur félagi getur þó aldrei farið með meira en 49 % atkvæðismagns á aðalfundi samtakanna eða félagsfundum.
4.2. Tilkynning um aðalfund.
Formaður samtakanna skal boða til aðalfundar með minnst tveggja vikna fyrirvara og mest fjögurra vikna fyrirvara. Skal boð vera skriflegt og sendast öllum félagsmönnum ásamt dagskrá fundarins.
Óski félagi að leggja fram á aðalfundi tillögu til afgreiðslu, skal gera það skriflega og senda skrifstofu samtakanna í síðasta lagi viku fyrir aðalfund.
4.3. Stjórn aðalfundar og fundarritun.
Aðalfundi stjórnar fundarstjóri, sem kosinn er af aðalfundi eftir tillögu stjórnar samtakanna. Ennfremur skal á aðalfundi kosinn fundarritari, sem skráir fundargerð í aðalfundargerðarbók samtakanna. Fundarstjóri og formaður stjórnar undirrita fundargerð hvers aðalfundar.
4.4. Dagskrá aðalfundar.
Aðalfundir samtakanna skulu haldnir í Reykjavík á hverju ári eigi síðar en 1. maí.
Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningur.
3. Félagsgjöld.
4. Kjör stjórnar.
5. Kjör endurskoðenda.
6. Önnur mál.
5.0. Aukaaðalfundur.
Stjórn samtakanna getur boðað til aukaaðalfundar, þegar hún telur slíkt nauðsynlegt. Ennfremur geta félagsmenn óskað skriflega aukaaðalfundar um tiltekið efni ef þeir fara með minnst 25 % atkvæða.
6.0. Félagsfundir.
Félagsfundir skulu haldnir minnst ársfjórðungslega. Stjórn félagsins ákveður hvenær þeir skulu haldnir. Boða skal skriflega til fundarins með dagskrá með minnst tveggja vikna fyrirvara ef kostur er. Meirihluti atkvæða mættra félaga þarf að liggja að baki ákvörðunum á félagsfundum. Hver félagi hefur sama atkvæðismagn og gilti á síðasta aðalfundi.
7.0. Stjórn.
Milli aðalfunda annast stjórn samtakanna stjórn þeirra. Stjórnin skal skipuð einum aðila frá hverjum aðildarfélaga, sem valdir eru á hverju ári á aðalfundi samtakanna og skal formaður kosinn sérstaklega.
Stjórnarformaður boðar að öllu jöfnu stjórnafundi, en jafnframt geta þrír stjórnarmanna gert það í sameiningu.
Stjórnarfundir eru ákvörðunarhæfir þegar minnst þrír stjórnarmanna sækja fundinn og ræður afl atkvæða úrslitum mála á stjórnarfundum.
8.0. Framkvæmdastjóri.
Stjórnin ræður framkvæmdastjóra ef þurfa þykir. Sé ekki eining innan stjórnar um val framkvæmdastjóra skal framkvæmdastjóri valinn af aðalfundi. Framkvæmdastjóri getur boðað til aðalfundar og stjórnarfunda í stað stjórnarformanns.
Fyrir störf sín hjá samtökunum fær framkvæmdastjóri laun, sem stjórnin ákveður.
9.0. Félagsgjöld.
Í byrjun árs skal lögð fram fjárhagsáætlun sem taka má til endurskoðunar ársfjórðungslega, óski aðildarfélagar þess.
Kostnaður við rekstur samtakanna skal greiðast á þriggja mánaða fresti, fyrirfram. Hlutfall af fjárhagsáætlun samtakana skal greiðast samkvæmt eftirfarandi;
a) Dreifingaraðilar fyrir Kvikmyndahús = 32,5%. Þetta hlutfall skal reiknast sem prósentu skipting samkvæmt fjölda gesta á sýndum eigin kvikmyndum, óháð kvikmyndahúsum, 3 mánuðum á undan.
b) Útgefendur myndbanda / DVD = 32,5%. Þetta hlutfall skal reiknast sem hlutfall af vægi titla félagsmanna til útleigu skv. Myndmark, þrjá mánuði á undan.
c) Útgefendur tölvuleikja = 10%. Þetta hlutfall skal reiknast sem hlutfall af seldum eintökum árið á undan.
d) Sjónvarpsstöðvar = 25%. Þetta hlutfall skal greiðast jafnt á milli sjónvarpsstöðva, óháð áskrift eður ei.
e) Framleiðendur efnis (eða samtök þeirra) eru undanþága frá liðum a-d enda greiða þeir félagsgjöld í öðru formi.
Aðrar tekjur sem félagið aflar, sbr.tekjur af sýningarréttum, ráðgjöf og / eða dómsmálum, skal koma til lækkunar á félagsgjöldum félaga.
10.0. Bókhald og endurskoðun.
Reikningsár samtakanna er almanaksárið. Reikningar samtakanna endurskoðast af tveimur endurskoðendum sem valdir eru á aðalfundi, og skal annar þeirra vera löggiltur endurskoðandi eða endurskoðunarfirma.
11.0. Skuldbindingar.
Stjórn samtakanna eða framkvæmdastjóri í umboði hennar hefur með höndum daglegan rekstur samtakanna innan ramma fjárhagsáætlunar.
Samtökin rita allir stjórnarmenn saman.
12.0. Úrsögn.
Félagi, sem hættir framleiðslu og/eða dreifingu á myndefni eða missir rétt til dreifingar á myndefni hér á landi, skal tekinn af félagaskrá. Skal slíkt gert á stjórnarfundi. Ennfremur getur stjórnin vísað félaga úr samtökunum ef hann hefur unnið gegn hagsmunum samtakanna eða vanefnir verulega skuldbindingar sínar við samtökin.
Stjórnin skal án ástæðulauss dráttar, tilkynna viðkomandi félaga með ábyrgðarbréfi eða öðrum sannanlegum hætti, um brottrekstur úr samtökunum.
Ákvörðun stjórnar um brottrekstur úr félaginu má skjóta til aðalfundar eða aukaaðalfundar, sem stjórn skal boða til sérstaklega af þessu tilefni. Krafa um málsskot skal send stjórn með ábyrgðarbréfi eða öðrum sannanlegum hætti innan tveggja vikna dagsetningu tilkynningar um brottrekstur. Málskot til aðalfundar frestar gildistöku brottreksturs gagnvart viðkomandi félagsmanni.
13.0. Breytingar á samþykktum og slit samtakanna.
Breytingar á samþykktum þessum geta aðeins átt sér stað á aðalfundi, þar sem mættir eru félagar sem samtals fara með a.m.k. 3/4 hluta atkvæða og breytingartillagan samþykkt með minnst 2/3 atkvæða mættra félagsmanna.
Hafi á aðalfundi átt að fjalla um breytingar á samþykktum félagsins skv. boðaðri dagskrá og mættir félagsmenn fara samtals með minna en 3/4 hluta atkvæða, skal engu að síður ganga til atkvæða um breytingatillöguna og sé hún samþykkt með 2/3 atkvæða mættra fundarmanna skal stjórn innan 3ja vikna kalla saman nýjan aðalfund með dagskrá, þar sem breytingartillagan telst löglega samþykkt ef hún hlýtur fylgi 2/3 atkvæða mættra félaga.
Ákvörðun um slit félagsins skal tekin fyrir með sama hætti og að ofan greinir að því undanskildu, að 3/4 hluta atkvæða þarf til að þess að hún nái fram að ganga.
Þegar samtökin eru lögð niður, skulu fjármunum samtakanna skipt milli þeirra félaga, sem eru á félagaskrá við slit samtakanna. Skal það gert í hlutfalli við greiðslur félaga til samtakanna síðustu 3 reikningsár. Framangreint fjármagn greiðist þó ekki þeim félögum, sem verið hafa aðilar skemur en 3 ár, og eru félagsgjöld þeirra ekki reiknuð með, þegar hlutfall þeirra félaga er fundið, sem eiga endurkröfurétt á félagsgjöldum.
Þannig samþykkt á aðalfundi samtakanna:
Reykjavík 11. Maí 2007
_________________________ _________________________
365 Ljósvakamiðlar Bergvík
_________________________ _________________________
Myndform Sam-Félagið
_________________________ _________________________
Sena Skjárinn
________________________ ___________________________
Rúv – Sjónvarp MPA
![]() |
Bæklingurinn ungt fólk og internetið | Könnun | ![]() |
|
Að skiptast á tölvuskrám. Leiðbeiningar fyrir foreldra. |
|


